Persónuverndarstefna

← Til baka í pöntun

Síðast uppfært: 25. október 2026

Vinnumarkaðsakademían ehf., kt. 600105-1320, leggur áherslu á ábyrga og örugga meðferð persónuupplýsinga. Persónuverndarstefna þessi lýsir hvernig við söfnum, notum, varðveitum og verndum persónuupplýsingar í tengslum við vefinn vinnumarkadsakademian.is og þá þjónustu sem við veitum.

Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Vinnumarkaðsakademían ehf. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á info@vinnumarkadsakademian.is eða hafa samband í síma 864 9616.

Hvaða upplýsingar vinnum við?

Við vinnum að meginstefnu aðeins með þær persónuupplýsingar sem þú veitir okkur sjálf/ur, auk tæknilegra upplýsinga sem verða sjálfkrafa til þegar vefurinn er notaður.

  • Samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, netfang, símanúmer og upplýsingar sem þú lætur okkur í té í fyrirspurnum.
  • Upplýsingar sem tengjast kaupum, skráningu á námskeið eða viðburð, reikningum og greiðslum.
  • Upplýsingar sem notandi skráir í stafræna skjalaþjónustu, svo sem í starfslýsingar, þar á meðal nöfn, starfsheiti, deild, svið, yfirmann og annað efni sem notandi velur að færa inn í skjal.
  • Upplýsingar sem verða til þegar við veitum ráðgjöf, sérfræðiþjónustu, atvinnumiðlun eða aðra þjónustu, að því marki sem þær eru nauðsynlegar fyrir verkefnið.
  • Tæknilegar upplýsingar vegna notkunar vefsins, svo sem IP-tala, vafraupplýsingar og nauðsynlegar vefkökur.

Við biðjum ekki um viðkvæmar persónuupplýsingar (svo sem upplýsingar um heilsu, kynþátt eða þjóðernisuppruna, stjórnmálaskoðanir, trúar- eða lífsskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðafræðilegar eða lífkennaupplýsingar og upplýsingar um kynlíf eða kynhneigð) nema þær séu nauðsynlegar vegna tiltekins verkefnis og fullnægjandi heimild sé fyrir vinnslunni.

Tilgangur og lagagrundvöllur

Tilgangur okkar er að veita fræðslu, ráðgjöf og aðra þjónustu á ábyrgan og faglegan hátt og meðhöndla persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög og reglur. Við nýtum þær upplýsingar sem þú veitir okkur aðeins að því marki sem nauðsynlegt er til að veita þér þjónustuna, eiga samskipti við þig og uppfylla þær skyldur sem á okkur hvíla. Upplýsingarnar kunna því að vera nýttar til að:

  • Að svara fyrirspurnum og eiga samskipti við viðskiptavini og aðra sem leita til okkar.
  • Að stofna til og efna samninga um námskeið, ráðgjöf, sérfræðiverkefni, atvinnumiðlun, fræðsluefni og aðra þjónustu.
  • Að afgreiða pantanir, greiðslur og reikninga og uppfylla lagaskyldur, meðal annars á sviði bókhalds og skatta.
  • Að tryggja rekstur, öryggi og virkni vefsins og verja lögmæta hagsmuni félagsins.
  • Að senda markaðsefni eða fréttir þegar viðeigandi samþykki liggur fyrir eða önnur heimild er fyrir hendi.

Meðferð persónuupplýsinga byggist á þeim heimildum sem viðeigandi eru hverju sinni, svo sem samningi við þig, lagaskyldu, lögmætum hagsmunum okkar eða samþykki þínu. Ef vinnslan byggist á samþykki getur þú afturkallað það hvenær sem er. Afturköllun hefur þó ekki áhrif á vinnslu sem þegar hefur farið fram með lögmætum hætti.

Miðlun upplýsinga og vinnsluaðilar

Við nýtum utanaðkomandi þjónustuaðila til að reka vefinn og veita þjónustu. Helstu aðilar sem koma að vinnslu persónuupplýsinga eru:

  • Tactica ehf. vegna vefhýsingar, tæknilegrar umsjónar og tengdrar upplýsingatækniþjónustu.
  • Microsoft vegna Microsoft 365, þar á meðal tölvupósts og skýjaþjónustu.
  • Teya vegna greiðslumiðlunar. Teya vinnur greiðslu- og færslugögn samkvæmt eigin persónuverndarstefnu og þeim skilmálum sem gilda um greiðsluþjónustuna. Sjá einnig viðauka Teya um gagnavernd.

WordPress og WooCommerce eru hugbúnaður sem vefurinn byggir á. Persónuupplýsingar sem verða til í tengslum við notkun WooCommerce, svo sem upplýsingar um pantanir og viðskiptavini, eru varðveittar í gagnagrunni vefsins hjá hýsingaraðila. Viðbætur eða tengdar þjónustur geta þó miðlað upplýsingum til utanaðkomandi þjónustuaðila.

Við nýtum utanaðkomandi þjónustuaðila við rekstur vefsins og þjónustunnar. Við vísum á persónuverndarstefnur þeirra þar sem notendur geta kynnt sér hvernig viðkomandi aðilar meðhöndla persónuupplýsingar og hvaða öryggis- og persónuverndarráðstafanir þeir lýsa.

Gögn í stafrænum skjölum

Þegar viðskiptavinur skráir upplýsingar um einstaklinga í stafræna skjalaþjónustu Vinnumarkaðsakademíunnar ber viðskiptavinurinn ábyrgð á því að hafa viðeigandi heimild til skráningar og vinnslu upplýsinganna. Að því marki sem Vinnumarkaðsakademían vinnur slíkar upplýsingar eingöngu fyrir hönd viðskiptavinar við vistun og rekstur þjónustunnar fer sú vinnsla fram í samræmi við gildandi persónuverndarreglur og eftir því hlutverki sem við á hverju sinni.

Efni sem notandi skráir í skjöl er notað til að veita, reka, tryggja og styðja þá þjónustu sem notandinn hefur óskað eftir, nema önnur heimild eða lagaskylda standi til annars. Aðgangur að slíku efni er takmarkaður við það sem nauðsynlegt er vegna reksturs, öryggis, þjónustu eða lagaskyldu.

Varðveislutími

Persónuupplýsingar eru ekki varðveittar lengur en þörf er á miðað við tilgang vinnslunnar. Gögn sem tengjast bókhaldi, samningum eða öðrum lagaskyldum eru varðveitt þann tíma sem lög krefjast. Önnur gögn eru yfirfarin reglulega og eytt eða gerð ópersónugreinanleg þegar þeirra er ekki lengur þörf.

Vefkökur

Vefurinn notar nauðsynlegar vefkökur til að tryggja virkni, öryggi og meðal annars virkni verslunar. Heimsóknamælingar fara fram með Burst Statistics í persónuverndarvænum ham án rakningarköku. Við notum ekki markaðskökur á þessu stigi.

  • woocommerce_cart_hash og woocommerce_items_in_cart – hjálpa WooCommerce að halda utan um innihald körfu.
  • wp_woocommerce_session_* – heldur utan um tímabundna WooCommerce-lotu viðskiptavinar.
  • wordpress_logged_in_* og wordpress_sec_* – eru notaðar þegar innskráður notandi eða stjórnandi notar WordPress.
  • wp-settings-* og wp-settings-time-* – geta vistað stillingar innskráðra WordPress-notenda.

Kökuborði á vefnum upplýsir um notkun nauðsynlegra kaka. Val notanda í kökuborðanum er vistað staðbundið í vafranum. Ef síðar verða teknar í notkun valkvæðar kökur, svo sem markaðs- eða aðrar rakningarkökur, verða þær ekki virkjaðar fyrr en viðeigandi samþykki liggur fyrir.

Réttindi þín

Einstaklingar eiga eftir atvikum rétt á að fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga, aðgang að eigin gögnum, leiðréttingu rangra upplýsinga, eyðingu eða takmörkun vinnslu, að andmæla vinnslu og að fá gögn afhent á tölvutæku formi. Réttindi geta sætt takmörkunum samkvæmt lögum.

Beiðnir um réttindi eða spurningar um persónuvernd má senda á info@vinnumarkadsakademian.is. Einnig er unnt að beina kvörtun til Persónuverndar.

Öryggi og breytingar

Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, tapi, breytingu eða miðlun. Stefnan kann að breytast eftir því sem þjónusta, tæknilausnir eða lagakröfur þróast. Gildandi útgáfa er ávallt birt á vefnum.

← Til baka á forsíðu